Lagalegir skilmálar
1. Um okkur
Garðarshólmi er verslun sem sérhæfir sig í fallegum fatnaði og gjafavöru.
Hjá okkur finnur þú breytt úrval af hágæða vöru í bland við stefnur og strauma hverju sinni.
2. Afhending/Afgreiðslutími
Hægt er að greiða fyrir pöntun með VISA eða MASTERCARD í greiðslugátt Korta eða með millifærslu í heimabanka.
Sé varan sótt, er hægt að greiða fyrir hana við afhendingu.
Ef pöntun er greidd með millifærslu, skal leggja inn á reikning:
Reikningsnúmer: 567-26-1986 Kennitala: 430169-4409, Askja ehf og senda staðfestingu á versluningardarsholmi@gmail.com
Eftir að vara hefur verið greidd, ábyrgjumst við að hún verði póstlögð næsta virka dag. Kjósi kaupandi að sækja pöntun í verslun okkar að Garðarsbraut 18, Húsavík er hún tilbúin til afhendingar eigi síðar en næsta virka dag.
Garðarshólmi tekur ekki ábyrgð á vörunni eftir að hún hefur verið póstlögð.
3. Afhending vöru
Við sendum frítt þegar verslað er fyrir 9.999 kr eða meira hvert á land sem er með bréfapósti eða á þitt næsta pósthús þegar greitt er fyrir vöru í vefverslun**
Garðarshólmi styðst við þjónustu Íslandspósts og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningskilmálar Íslandspóst um dreifingu og afhendingu. Það má lesa um þá hér: http://www.postur.is
Hægt er að panta og greiða sérstaklega fyrir „pakki heim að dyrum“ Pakki heim að dyrum kemur með heimkeyrslu Póstsins daginn eftir að vara er send af stað til þín og þarf þá einhver að vera heima til að taka á móti sendingunni. Þú færð sms frá Póstinum daginn sem sendingin fer í heimkeyrslu ef þú skráir GSM númerið þitt hjá okkur þegar þú pantar. Ef enginn er heima til að taka við sendingunni þá fer hún beint á næsta pósthús og er þá tilbúin til afhendingar þar morguninn eftir.
Einnig er hægt að sækja vörur í verslun okkar að Garðarsbraut 18, Húsavík.
** vörur sem komnar eru á lagersölu og/eða útsölu eru ekki sendar endurgjaldslaust heldur greiðist 990 kr sendingarkostnaður sem þó fellur niður sé verslað fyrir 9.999 kr eða meira.
4. Vöruskil
14 daga skilaréttur er á öllum vörum í vefverslun, vara þarf að vera óskemmd og ónotuð.
6. Lög um varnarþing
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Verslunarinnar Garðarshólma á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá Héraðsdómi Norðurlands Eystra.
7. Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.